Ertu að hugsa það sama og ég :O ???
13.09.2006 19:26:43 / jakjak

Töff....

 

THE BEAUTIFULLS !!!

 

 

Á leið sinni um höfin stoppuðu stelpurnar í Danmörku til þess að fá sér danskar pulsur þegar Vera hverfur allt í einu....

 

Mist kallar: Vera Bera, Vera Pera....VERA !!!

Tinna: stelpur höldum allar ró okkar þetta reddast allt saman

Kristín: HA....kannski tóku rúmfötin hana.....

Tinna: Svarti káetukall koddu aðeins hérna og reddaðu okkur aðeins....

Stelpurnar þorðu ekki að færa sig langt því ef Vera kæmi að leita að þeim.....

Þremur dögum seinna kemur Vera gangandi til stelpnanna og viti menn við hlið hennar gengur hávaxinn ungur maður....þegar þau komu nær sáu stelpurnar að þetta var Maggi

Allar hrópa í kór: MAGGI, er allt í lagi með þig, hvar ertu búinn að halda þig.

Maggi hafði sem sagt stokkið upp í ranga flugvél þegar hann ætlaði að skreppa í kaffi til ömmu sinnar á Egilsstöðum en hann endaði með skrítnum ættflokki í Finnlandi. Maggi var þó búinn að tapa málinu ALVEG því hann var gerður foringi ættflokksins og foringinn talar ekki né prumpar, foringinn á bara að dansa Afró allan daginn og leit Maggi svona út þegar hann var upp á sitt versta:

 

Stelpurnar vildu þó ekki fara heim til Íslands alveg sama hversu mikið Maggi bæði þær um það, með því að benda með tungunni í áttinni að Íslandi og leika eldfjöll og snjó, því þær vildu ekki láta lítinn hlut eins og þennan eyðileggja fríið sitt.

 

 

Verður allt í lagi með Magga ?

Ætlar Kristín ekki að hætta þessu ?

Er Tinna Mamma hans Sigga ?

Munu stelpurnar einhvern tíman koma heim ?

Hefur Maggi ekkert horft á sjónvarp allan þennan tíma ?

Eru Guðjón og Sindri búnir að ganga frá Daníel með brandörunum sínum ?

Fylgstu með  í næsta þætti af:

 

 

THE BEAUTIFULLS !!!

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 16:17:45 / jakjak

Jájajájá

THE BEAUTIFULLS !!!

 

Margt hefur gerst í The Beautifulls síðan í síðasta þætti, sumir dáið, aðrir bæst við og enn aðrir bara haldið áfram að vera til....

 

Stelpurnar í The Beautifulls ákváðu að fara í siglingu um höf þegar Jónína dó og sögðu allar kærustunum sínum upp í kjölfarið. Þegar siglingin var komin á lang leiðina dreymdi Kristínu mjög sérstakan draum.

Draumur Kristínar: Kristínu dreymdi dauða Jónínu, en hana dreymdi að hún hafði dáið því það hafði einhver eitrað rúmfötin hennar og hún hafi endað því að sér og þar af leiðandi dáið.

 

 

Kristín (upp úr svefni): AAAAAAAAAAAA, hjálpið mér að koma öllum rúmfötunum úr skipinu, hendum þeim fyrir borð.

Svartur káetu kall: Hvað er að unga kona....

Kristín (enn sofandi og labbandi um allt): heyrðiru þetta ekki hún dó út af rúmfötunum, hendum þeim öllum í burtu. BURTU BURTU BURTU.

Tinna (káetufélagi Kristínar) *rumsk* hvað er að gerast.

Svarti káetu kallinn: Ég veit  það ekki.

Tinna: æjjjji, er hana að dreyma þetta aftur. Kristín þetta er allt í lagi kúraðu bara hjá mér þó þú passir ekki jafn vel við mig eins og Jónína þá verður þetta allt í lagi. Kysstu hana þá róast hún.

Svarti káetu kall: HA.....

Tinna: Já, núna

Og Svarti káetu kallinn slefaði upp í Kristínu eins og hann fengi borgað fyrir það og viti menn þá rankaði Kristín við sér og Tinna fór fram á meðan Kristín og Svarti káetu kallinn kláruðu sitt.

 

 

Á meðan í landi:

Gauji: Hvað heiti ég ?

Sindri: Sindri

Gauji: Hvað heiti ég?

Sindri: Sindri

Gauji og Sindri: HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA.

Daníel: oK, strákar þetta var fyndið í svona klukkutíma en þetta er eiginlega búið núna....

Siggi situr úti í horni og glammrar á gítarinn og hugsar með sér hvað hann langar í bjór í Hollandi.

Krissi situr í Argentínu og hugsar með sér hvað hann langar í bjór í Hollandi.

Svo þeir skjótast báðir til Hollands og fá sér bjór en hittast því miður ekki.

En Heldur Kristínu áfram að dreyma ?

Hvernig verða samböndin þegar stelpurnar koma heim ?

Hvernig bregðast Siggi og Krissi við þegar þeir komast að þessu ?

Er Daníel búinn að tapa húmornum ?

Hvern finna stelpurnar í ferðinni ?

 

Fylgstu með í næsta þætti af

 

 

THE BEAUTIFULLS !!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 17:12:14 / jakjak

Jæjjjaa....allt að ske en ekkert að gerast....

Jæja gott fólk þá er kjéllingin mætt aftur á svæðið !!!!

Heef svo sum ekkert merkilegt að segja nema það að ég ætla að reyna að byrja aftur með The Beautifulls í þessari viku og það mun sko allt fara í háloft þegar það gerist !!!

Annað merkilegt í gangi í mínu lífi að þá þarf ég virkilega að kaupa mér brjóstarhaldara, ég var að kaupa mér nýja skó og ég er að verða vitlaus á kommu-takkanum hérna því litli bróðir minn er svo skemmtilegur að hann hellti niður kóki á hann svo það þarf eiginlega að negla honum niður til þess að eitthvað gerist.....Pussa !!!

Fyrst ég er nú að tala um litla bróðir minn að þá er hann kominn með nýtt ædol og er það enginn annar en góðvinur minn hann Sigurður Atli Sigurðsson...lukkí bastard....

Annars var helgin bara fín, geggjað hjá Danna á laugardaginn :D.....Mad props Danni Mad props....!!!

-Daði fílar Hips don't lie með Shakiru !!!

Segjum ekki meir um það

En ágæt fólk, ég heyri bara í ykkur seinna í þessari viku þegar allt byrjar að gerast í The Beautifulls.

Jónína Ben !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 11:42:13 / benina

Kodd'að leika

THE BEAUTIFULLS !!!

Nýjustu upplýsingar segja frá því að Vera hafi sagt Daða frá óhappinu með body-bouncerinn, Daði varð aðsjálfsögðu ekki sáttur en gerði sér þó grein fyrir því að hún var þó ekki að halda framhja sér.

Daði situr einn fyrir framan spegilinn heima hjá sér og talar við sjálfan sig:

Daði:Er ég faðir Jóa, hvað eigum við að segja Jóa þegar hann verður stór og sér að hann er ekki jafn loðinn og ég.... Hvað get ég gert, er svo einmanna núna, ó þú grimma veröld !!!

Daði tekur sér smá pásu til þess að fara að snýta sér.

Daði: Ég get ekki verið svona allt mitt líf....hvernig vill Krissi díla við þetta, vill hann vera pabbinn eða á ég að vera hann, ég veit allavega að ég elska Veru en getur hún verið með mér ef við eigum ekki barnið saman.....

*buhuhuhuhuhuhuhuhuhuhuhuhuhuhuhuhuh*

Ó þú grimma veröld hvað geri ég nú í tilvistarkreppunni minni ???

Þetta var aðeins stutt innskot um stöðu mála hjá Veru, Daða og Krissa, annar lengri og meiri djúsí þáttur er þó í vinnslu ;) (týndi lykilorðinu mínu)

 

Fylgstu með í næsta þætti af:

THE BEAUTIFULLS !!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 23:37:50 / jakjak

alæta á tónlist...

The Beautifulls

 

 

Guðjón fór á hörku djamm í síðasta þætti og endaði þar með engri annarri en ofur druslunni Hugrúnu, sem hann hélt að væri Lindsay Lohan.

 

 

Ofur druslan Hugrún

 

ofur stjarnan Lindsay Lohan

 

Eins og fólk sér greinilega er nokkur munur þarna á milli án þess að taka neina afstöðu. *hóst* Lindsay er heitust í öllum heiminum *hóst*

Gauji (eftir að hafa sofið hjá Hugrúnu): So how was it for you ?

Hugrún: Afhverju ertu að tala ensku ?

Gauji: vá hvað þú ert klár, getur talað íslensku, leikið, sungið og talað ensku....váááá, ég er með bólur, neihh úps bóner, viltu giftast mér?

Hugrún: Jáhh...heh...þarf að segja þér soldið, ég er líka með bólur.

Gauji: HA...hvar?

Hugrún: sjáðu....

Gauji: OJJJJJJJJJ.....

 

Þarna fór nú illa fyrir aumingja Guðjóni, en svona er nú bara lífið !!!!!

 

 

Hvar er Hugrún með bólur?

Giftast þau ?

Hvert er leyndarmálið?

Kobbi?

Gudda?

Góli?

Sunneva?

Jónína og Nanna?

Hvar er Maggi?

Barnið hennar Veru?

 

Fylgstu með í næsta þætti af:

The Beautifulls!!!


» 17 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 17:33:54 / jakjak

Nú kostar hver aukahlutur aðeins 59 krónur

THE BEAUTIFULLS !!!

 

jæjjjaa.....nú er liðið svolítið frá síðasta þætti en vinsældir hafa þó ekki dvínað...

 

5. Þáttur:

 

Vera fór nýlega í faðernispróf til þess að athuga hvort barnið væri í rauninni Daða og kom þá í ljós að svo var ekki. Það hefðu verið nokkrar leyfar af sáðfrumum Krissa eftir við síðustu notkun á Body-Bouncernum. Vera hefur þó haldið þessu fyrir sig enn sem komið er.

 

 

 

Þessi mynd fannst af Guðjóni á djamminu stuttu eftir rifrildið.

Í síðasta þætti rifust Mist og Gauji all svakalega en náðu þó að sættast eftir að Mist sannfærði hann um að hann sé aumingi. En núna eru þau þó endanlega hætt saman því náttúrúverndarsinninn Guðjón neitaði að hafa frekari samfarir við Mist eftir að hann komst að því að hún notar handþurrkur í staðinn fyrir handblásara til þess að þurrka sér um hendurnar þegar hún er búin á almenningsklósettum.

Mist: Hvaða drullu, djöfulsins, helvítis máli skiptir það???

Guðjón (alveg að fara að grenja): Veistu hvað mörg tré hafa þurft að láta lífið svo þú getir þurrkað á þér hendurnar.

Mist: Já en hversu margir fá að éta fyrir peningana sem þessi pappír er keyptur með, hefurðu hugsað út í það??? ég meina það er fólk sem vinnur við að rækta þessi "grey" þín, fella þau búa til pappír og fleira....

Gauji: Æjjj...þú ert bara ömurleg ég er bara farinn á djammið

Gauji hleypur síðan út hágrátandi út í búð og kaupir sér tissjú til þess að þurrka sér um augun.

 

 

 

 

Slitnað hefur upp úr sambandi Sindra og Kristínar því Kristín þoldi það ekki lengur að Danni og Sindri voru ennþá í stöðugu sambandi eftir að þau komust að litla, ljóta og ógeðslega leyndarmálinu þeirra. Kristín og Þórdís hafa þó ekki enn talast við eftir að Danni og Þórdís uppljóstruðu layndarmálinu.

 

 

Hvað verður af barninu hennar Veru ?

Hvenar segir hún hið sanna ?

Hvar er Maggi ?

Hver verða viðbrögðin við fréttum Veru ?

Sunneva og Góli ?

Gudda og Kobbi ?

Jónína og Nanna ?

Með hverjum/hverri endaði Guðjón á djamminu ?

Ná Kristín og Sindri aftur saman ?

Hversu lenfi ná Þórdís og Danni að halda leyndarmálinu leyndu ?

 

 

Fylgstu með í næsta þætt af:

 

 

THE BEAUTIFULLS !!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 12:20:14 / jakjak

Enjoy

Hérna fyrir neðan eru allir nema fyrsti Beautifulls þátturinn því hann hefur eyðst útaf þessu dótir hérna !!!

 

En í framhaldi af þessu ætla ég að búa til slúðurdálk sem verður eingöngu með slúður úr The Beautifulls, það er að segja ef einhver áhugi er fyrir því...

 

 

Jónína Ben !!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 12:16:28 / jakjak

Team America

THE BEAUTIUFLLS...

2. þáttur.

 

Daði og Vera liggja uppi í rúmi og hafa ekkert að gera eftir endalausar tilraunir til þess að stunda spennandi kynlíf...

Daði: Hey, ég fékk geggjaða hugmynd, hringjum í Danna og Þórdísi og bjóðum þeim út að borða.

Vera: Já, kannski að við getum síðan fengið þau heim í smá leiki 0

Daði: Já, við getum lokkað þau heim með því að segja að við ætlum að horfa á Team America.

Vera: NEI !!!

Það tók Daða síðan um hálftíma til þess að mana sig upp í það að hringja í Danna því Vera nennti ekki að tala í símann, en þegar hann hringdi loksins voru þau búin að gera plön með Kristínu og Sindra.

Vera hugsar: Kannski að Krissi sé til í að lána okkur Katrínu...

Daði hugsar: Kannski að Katrín sé til í að lána okkur Krissa...

Lítta snögglega hvort á annað og segja bæði á sama tíma: ertu að hugsa það sama og ég, já ég held það.

Daði hringdi í Krissa en þau voru þegar búin að gera plön með Gauja og Mist en hann var meira en til í að lána þeim Body-Bouncerinn sinn, Katrínar.

3 klukkustundum síðar.

Vera og Daði liggja bæði uppgefin uppi í rúmi eftir að hafa stundað frábært kynlíf.

Daði: UHUHUHUHUHUHUHU...

Vera: BAHAHAHAHAHAHAHAHA, þetta kítlaði...

Daði:UHUHUHUHUHUHUHU...

Vera: aæjjj....ekki hlæja af mér, gerðu þetta frekar aftur....thíhíhíhí...

Síðan fara þau að horfa á Team America

 

MATT DAAAAAAMOOOON !!!

 

3 dögum síðar.

Vera og Daði komust að því að þau ætluðu ALDREI að nota Body-Bouncerinn aftur, í fyrsta lagi voru þau gömlu hjónin alveg uppgefin eftir þetta með harðsperrur allstaðar verki í baki og aum í kynfærunum og í öðru lagi varð Daði svo svakalega öflugur á þessu að Vera var barasta komin 7 mánuði á leið. Þau halda því allavega fram að þetta hafi verið Body-Bouncernum að kenna en ég tel að þetta hafi bara verið gamalt.

 

Jói litli í bumbunni á Veru.

 

 

Kristín, Sindri, Danni og Þórdís fóru á Humarhúsið í hádeginu þann 29. ágúst 2007 til þess að fagna því að Nylon hættu störfum, Danni og Sindri létu tattúera þessa dagsetningu á sig og ætla að fagna árlega.

En á meðan þau sátu og nutu yndislega matarins síns ljóstruðu Danni og Þórdís upp litla og ljóta leyndarmálinu sínu...

Kristín: ojjjjj, ég er farin djöfulsins viðbjóðirnir ykkar, hversu sjúkur er hægt að vera.

Sindri: BHAHAHAHAHAHAHAHAHA.....bíddu Kristín.....

Kristín og Þórdís hafa ekki talast við síðan þetta gerðist og eru nú þrjár vikur liðnar síðan á meðan Sindri og Danni talast við á hverjum degi því Sindra finnst litla ljóta leyndarmálið þeirra svo spennandi.

 

Eiga Kristín og Þórdís eftir að talast einhvern tíman aftur við ?

Á Daði barnið ?

Hvað gerðist þegar Krissi, Katrín, Mist og Gauji hittust ?

Hvar er Maggi?

Eiga Daði og Vera alveg eftir að hætta að stunda kynlíf núna ?

Á Kristín eftir að halda áfram með Sindra fyrst honum finnst leyndarmálið spennandi ?

 

HVERT ER LEYNDARMÁLIÐ ???

 

Fylgist með í næsta þætti af:

THE BEAUTIUFLLS

 

Jónína Ben !!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 12:15:52 / jakjak

Dell

BEAUTIFULLS...

 

3. Þáttur.

Eftir að Vera eignaðist barnið gat hún ekki hugsað sér að vera aftur með karlmanni, allavega ekki í bili og náðust því nokkrar myndir af henni að daðra við hit kynið:

 

 

Þetta er sem sagt mynd af Veru á djamminu með trukka lessunni Guddu, eða hún heldur allavega að hún sé trukka lessa, hún er það allavega á meðan hún finnur sínu rétty kynhneigð.

Þegar Daði Snær sá þessa mynd var hann sko ekki sáttur og fór sjálfur að dandala sér með ungum dópista að nafni Kobbi:

 

 

Þarna sést Kobbi ásamt drykkjufélaga Jónínu, alkhólistanum Nönnu.

 

Vera varð mjög afbrýðisöm út í Kobba og ákváð því að taka hann aftur með því skilyrði að þau myndu ekki stunda kynlíf með hvert öðru í hálft ár.

Daði: Afhverju ekki með hvert öðru ?

Vera: Því á það æsir mig að vita til þess að þú sért að sofa há öðru fólki, ég held að þetta sé gott fyrir sambandið, allavega svona rétt á meðan við erum að reyna að krydda upp á kynlífið hjá okkur (og blikkar hann á mjög kynæsandi hátt þannig að hann fær stingandi stand og skammast sín svo mikið að hann þorir ekki öðru en að segja já við þessari tillögu hennar)

 

Í síðasta þætti hittust Krissi, Katrín kynlífsþræll, Gauji og Mist.

Gauji og Mist voru par áður en Mist fór til Sviss en ákváðu að hætta endanlega að sofa saman eftir mjög svo skemmtilega útilegu, eða allavega á meðan hún væri úti. Þegar Mist kom loksins heim eftir mikinn söknuð Gauja var hann búinn að fara í kynskiptiaðgerð því hann saknaði Mistar svo og vildi reyna að líkjast henni á enhvern hátt, hann var sem sagt kominn með brjóst og leggöng. Þegar hún sá hvað hann hafði gert ákvað hún að fara líka í svona aðgerð nema láta græða á sig typpi svo þau gætu stundað "eðlilegt" kynlíf, en engin hætta var á því að Gauji yrði óléttur því Mist fékk ekki næg hormón frá lækninum til þess að framleiða sæðisfrumur.

Þegar þau fjögur hittuist fór allt í háa loft því hvorki Krissi né Katrín vissu af þessum miklu breytingum Mistar og Gauja. Katrín fékk panik kast og byrjaði að froðufella og hristist öll, Krissi horfði á hana í smá stund en sagði síðan:

Æjjjj, hún hlýtur að jafna sig eftir smá.

Þá stóð Katrín skyndilega upp.

Katrín: Ég veit vel að þú lítur bara á mig sem kynlífsþrælinn þinn,en ég hélt að þér væri ekki alveg sama um mig.

Og síðan sló hún hann utan undir og strunsaði út.

Krissi: Æjjjj, hún hlýtur að jafna sig eftir smá.

Gauji tók þessu mjög alvarlega, enda kominn í kynni við sína kvennlegu hlið og hljóp út með tárin í augunum og tissjú til þess að reyna að hugga Katrínu, en á meðan fengu Krissi og Mist sér bjór og klóruðu sér í pungnum.

 

Hvað verður núna um Guddu og Kobba ?

Finna þau sér nýja maka ?

Er Nanna leynilögregla ?

Verða Krissi og Katrín í lagi ?

Hvað er að Mist og Gauja ?

Hvar er Maggi ?

Fylgstu með næsta þætti af:

 

THE BEAUTIFULLS...

 

Jónína Ben !!!


» 46 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 12:15:15 / jakjak

Mamma'ín

THE BEAUTIFULLS...

 

Jónína sat inni á Kaffi-skít einn góðan þriðjudaginn þegar Nanna Fanney æddi þar inn með 5 löggur með sér. Jónína varð strax voða spennt því hún hélt að þetta væru stripparar.

Jónína: Æjjji hvað þú ert sæt í þér druslan þín, en hvernig í andskotanum vissiru að þetta væri einmitt það sem myndi toppa daginn hjá mér, hann er nefninlega búinn að vera yndislegur. Sko! fyrst hitti ég.....

Nanna: Þegiðu *sniff* ég hef ekki tíma fyrir svona lagað *kjökr*

Jónína: oK, lets get the party started....wraffff....

Nanna byrjar að gráta og krýpur fyrir framan Jónínu þar sem hún situr í skítugasta horninu við skítugasta borðið á skítugasta stólnum með skítugasta glasið því hún er skítugust.

Nanna: Ég verð að segja þér svolítið.

Jónína: Já drullaði því út úr þér kona áður en....

Nanna: Ég er mamma þín.

DUM DUM DUM.....

Nanna: Ég kom með þessu ungu herramenn með mér til þess að fá þig til þess að koma í meðferð og þar sem þú átt eftir að vera þar í all langan tíma þá hef ég ákveðið að láta frysta mig á meðan því ég er orðin svo gömul að ég verð líklegast bara dauð þegar þú kemur loksins út.

Jónína: oK...

Og Jónína fór í meðferðina, er hún núna búin að vera þar í 3 daga og allt gengur bara mjög vel, nema það að á öðrum deginum var henni hent í einangrun því hinir alkarnir urðu allir drukknir af áfengisgufunum sem fylgdu henni...

 

 

Krissi og Katrín urðu í lagi skömmu eftir þetta óheppilega atvik, eða það er að segja eftir að Krissi gaf henni nýjan Body-Bouncer sem hann keypti en smíðaði ekki sjálfur úr gömlum spítum, notuðum nöglum og nýjum sparidúk. Og hérna er þessi týpa sem hann keypti fyrir hana: http://www.bodybouncer.com/ 

Katrín: Æjjji takk Krissi, ég vissi það allan tíman að þér þætti vænt um mig.

Krissi: Ég vissi að þú myndir jafna þig.

Gauji: Ekki gera þetta Katrín, ekki fyrirgefa honum það hvernig hann kom fram við þig, hann gerir þetta bara aftur ef þú gerir honum þetta svona auðvelt.

Mist: Æji þegiðu einskins nýta kellingin þín.

Gauji: Ég læt ekki tala svona við mig, ég er farin.

Mist: Æjjjjj, hún/hann hlýtur að jafna sig.

Eftir mikil rifrildi náði Mist að sannfæra Gauja um það að hann væri ekkert nema aumingi með hor sem ætti heima á leikskóla með krökkunum sem borða sandinn.

 

 

Á Gauji eftir að þola það að láta tala svona til sín að eilífu ?

Var Nanna að segja satt ?

Eða er hún bara leynilögregla ?

Hvar er Maggi ?

Hvert er leyndarmál Þórdísar og Danna ?

Eiga Krissi og Katrín eftir að endast eitthvað lengi í þetta skiptið ?

Eru Kristín og Sindri í lagi ?

 

Fylgist með í næsta þætti af:

 

THE BEAUTIFULLS...

 

 

Jónína Ben !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 14:17:15 / jakjak

17 ára í síðri kápu

Jæjjjaa.....

 

Ég var að falla í þýsku 203 áðan....Ekki alveg nógu sátt með það, nenni ekki að taka þennan helvítis áfanga aftur, hann er svo ógeðslega leiðinlegur.....arrrggghhhh Fokking Eva...allt henni að kenna...hún þolir mig ekki

 

Ég þarf einhvern, svona minn

Sry, er hætt að væla

 

Hef aldrei neitt áhugavert að segja í bloggunum mínum.

 

Er samt að hugsa um að stofna svona slúðurdálk sem verður eingöngu með heitasta slúðrið úr The Beautifulls og þessvegna verða næstu dagar tileinkaði The Beautifulls og verða því þættirnir endursýndir svo fólk minu hvar allt stendur ;)

 

Síðasta blogg var víst ekki að gera sig...

 

 

En ætla að fara að "læra", já "læra".

 

 

Jónína Ben !!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 14:48:19 / jakjak

...

Ég í próflestrinum.....

 

NENNI EKKI, er samt eiginlega ekki búin að gera neitt !!!

 

Æjjj, er farin að horfa á sjónvarpið ein og ég er búin að gera í allan dag :D

 

 

Jónína Ben !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 18:00:54 / jakjak

mjemmmm

Jæjjjja....hingað er ég komin til þess að skrifa 5 tilgangslausar staðreyndir um sjálfa mig.

  • Ég var að koma úr baði
  • Það var Engifer og gróft salt í baðinu
  • Ég fær hamborgara í matinn
  • Ég fór á Harry Potter í gær og Daniel Radcliffe er heitari en allt heitt.....
  • Er að googla Daniel Radcliffe....

Nóg í bili.....

Jónína Ben !!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 19:24:37 / jakjak

I'm a fool in so many ways

Jæjja....

Þetta blogg átti að vera Beautifuls þáttur en ég er of þunglynd til þess að gera hann....:(

Ok ég skal vera svo einstaklega væn og segja ykkur afhverju ég er svona þunglynd akkúrat núna....ég hef komst að því að ég á við mikið vandamál að stríða í sambandi við þyngd mína....ég sem sagt var að fara á klósettið áðan (glænýtt klósett sem mamma og pabbi voru að kaupa á um 40.000) og þegar ég settist þá brotnaði helvítis setan...

Mín var sko ekki sátt og var/er bara gráti næst :(

En ef maður hugsar um það þá er þetta alveg drullu fyndið....samt !!!!

Æjjj...þetta er ekkert gaman núna

Myndirnar úr ammlinu mínu er komnar inná www.sindri.us....

Jónína Ben !!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 13:23:21 / jakjak

Nú verður þú að skipta á mér !!!

Núverandi tími: 13:11

Núverandi föt: grá hettupeysa, sokkar sem Sigyn gaf mér í jólagjöf hermanna-grænar buxur og nærföt (það er mygly dagur í dag)

Núverandi skap: Þreytt, nenni ekki að taka til fyrir föstudaginn

Núverandi hár: uuuu.....dökkt stutt og síður pirrandi toppur...

Núverandi pirringur: Tónlistin sem systir mín hlustar á.....er að verða vitlaus á þessu síðan á hún svo bilaðar græjur að læsta á þeim er geðveikt hátt....arrrr....

Núverandi lykt: Var að borða grillað brauð þannig að það er svona grillað-brauðs-lykt  

Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Taka til læra sofa....

Núverandi skartgripir: uuuu....gamli giftingahringurinn hennar ömmu Karolínu og hálsmen sem Ína amma gaf mér í skírnargjöf.....

Núverandi löngun: ekki neitt....var að klára að éta....

Núverandi ósk: uuuuu.....að allir séu jafn saddir og ég er núna.... :P

Núverandi farði: Maskari

Núverandi eftirsjá: Að eiga eftir að sjá eftir því að vera ekki að taka til núna á eftir .....

Núverandi vonbrigði: Að eiga eftir að eyða slatta í leigubíl í kvöld 

Núverandi skemmtun: uuuu....vet ekki en ég þarf að pissa....

Núverandi ást: Ætla að vera geðveikt sjálfselsk og segja bara að ég elski mig....

Núverandi staður: uuuu...frammi í stofu þar sem tölvan er þar !!!

Núverandi bók: Bítlaávarpið

Núverandi bíómynd: Cabarett með Lisu Minelli

Núverandi Íþrótt: Var að byrja að æfa Afró með mömmu, það er geggjað

Núverandi Tónlist: Er að hlusta á Abbabbabb, hún er vanmetin

Núverandi lag á heilanum: uuu...skólajógúrtslagið, er búin að vera með það á heilanum nokkup lengi

Núverandi blótsyrði: Böðvar...."skyrp" andskotinn

Núverandi msn manneskjur: Er ekki á msn er að drífa mig að fara að horfa á Neighbours á Stöð2+

Núverandi desktop mynd: Mist með gat í tungunni

Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Er að fara á 85' ballið hjá MS, langar reyndar líka á Ghettó ballið...ennn.....

Núverandi hlutir á veggnum: Einhver málverk og eithvð dót !!!

Tók þetta af síðunni hennar Láru því hún er kúl ;)

Jónína Ben !!!
















» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10